Vélsleðaslys á Flateyjardal
Í gær voru björgunarsveitir á Norðulandi kallaðar út vegna vélsleðaslyss á Flateyjardal, um 1 km norðan við Heiðarhús. Fóru félagar í Súlum og fleiri sveitum ásamt sjúkrafluttningamönnum að slysstað þar sem hlúð var að hinum slasaða. Þyrla LHG flutti sjúklinginn síðan á sjúkrahús. Fóru sleðar, bílar og snjóbíll Súlna í útkallið ásamt nokkrum mannskap.






